Obbosí...

Er ekki kominn tími til að blogga W00t

Og þá byrja ég blogg á nýju ár og byrja vissulega á því að óska ykkur gleðilegs nýárs með þökk fyrir það liðna Wizard

Af mér og mínum er allt gott að frétta, við flúðum Ólátagarð um jólin og fórum austur á Húsavík á Þorláksmessukvöld og dvöldum þar í 5 daga í yndislegu yfirlæti hjá tengdó.  Snöruðumst heim í fjörið og eyddum restinni af árinu í faðmi Ólátagarðsmeðlima Cool  Lífið gengur sinn vanagang að öðru leiti þessa dagana, vinna, sofa, nærast samt með varúð þar sem það á alltaf að standa sig betur í þeim málum á nýju ári, og verða svaka flott og fitt Whistling

 Kæru vinir um allan heim og geim, hafið það sem best alltaf Kissing

Kv.Frúin að reyna að standa sig í blogginu Police


Kommúnufílingur :)

Komið þið sæl og blessuð Wink

Það er sérdeilis búið að vera mikið að gera hjá mér þessa dagana búin að vera á faraldsfæti og komin heim með Spanjólana mína, kom við í Hreddanum og á Skaganum í leiðinni.

En nú er framundan að púsla okkur hér inná heimilið. Ólátagarður ber nafn með réttu núna og er eiginlega að breytast í einhverskonar kommúnu en það er bara gaman af því og gott að fjölskyldan þjappi sér saman í kreppunni.

Hér innandyra eru 11 manns og 6 kettir W00t Eins gott að húsið mitt sé stórt LoL

En þar til næst hafið það gott allir Heart

Kv.Frúin að púsla Police


...........

Þetta er nýjasti fjölskyldumeðlimurinn hann Pan skógarkisi Kissing
Ég kolféll fyrir honum en hann er hálfbróðir hans Brattar míns, svo er líka bannað að segja nei við afmælisgjöfum Wizard
Bjartar Pan sætastimús by siggamagga
Kv. Frúin mjááá Police

Þá er ég.......

.....loksins búin að taka blogghring á bloggvinina Wink

Ég er á lífi ó já, en á við tímaleysi........eh best að vera bara hreinskilin.....ég er blogglöt þessa dagana og hana nú Tounge

En ég er að fara í mitt árlega húsmæðraorflof um helgina við útsaum og hin ýmsu handverk...yeh right Sideways

Hafið það gott til sjávar og sveita þar til næst Kissing

Kv.Frúin ógeðslega löt eitthvað Police


Hugleiðing

  
LAG  AF  RYKI  VERNDAR  VIÐINN  UNDIR  ÞVÍ... HÚSIÐ VERÐUR HEIMILISLEGRA ÞEGAR ÞÚ GETUR SKRIFAÐ „ ÉG ELSKA ÞIG' Í RYKIÐ Á HÚSGÖGNUNUM.
 
ÉG  VAR  VÖN    EYÐA MINNST  8. TÍMUM  HVERJA  HELGI TIL ÞESS VERA VISS UM
AÐ ALLT VÆRI FULLKOMIÐ  „ EF AÐ EINHVER SKYLDI KOMA ÓVÆNT Í HEIMSÓKN' ...
AÐ  LOKUM  UPPGÖTVAÐI   EG AÐ ÞAÐ KOM ENGINN Í HEIMSÓKN ..ÞAÐ VORU  ALLIR ÚTI AÐ SKEMMTA SÉR!!!
JÆJA.., EN  ÞEGAR  AÐ  FÓLK  KEMUR  Í  HEIMSÓKN, ÞÁ  ÞARF ÉG EKKI AÐ ÚTSKÝRA ÁSTANDIÐ Á HEIMILINU ....
ÞEIR  HAFA  MEIRI  ÁHUGA  Á  AÐ  HEYRA  UM  ÞÁ  HLUTI  SEM  ÉG  HEF VERIÐ  AÐ  GERA  Á MEÐAN ÉG VAR  ÚTI Á LÍFINU  OG  SKEMMTA MÉR!!

 
EF  AÐ  ÞÚ  HEFUR  EKKI  UPPGÖTVAÐ  ÞETTA  ENNÞÁ ,
ÞÁ  SKALTU FARA  AÐ ÞESSU HEILRÆÐI:
LÍFIÐ  ER STUTT.  NJÓTTU  ÞESS!!!!!
ÞURRKAÐU AF EF ÞÚ VERÐUR...
EN ÞAÐ EKKI MIKILL TÍMI  TIL;   AÐ  FÁ  SÉR  BJÓR , SYNDA  Í  ÁM  OG KLÍFA  FJÖLL , HLUSTA  Á   TÓNLIST OG  LESA  BÆKUR ,  FAGNA  MEÐ  VINUM  OG  LIFA  LÍFINU...
 ÞURRKAÐU  AF EF ÞÚ VERÐUR...EN  VÆRI  EKKI  BETRA AÐ MÁLA  MYND  EÐA  SKRIFA BRÉF, BAKA SMÁKÖKUR  EÐA  KÖKUR  OG  SLEIKJA SKEIÐINA,   EÐA SÁ FRÆI.  
HUGLEIDDU  MUNINN Á MILLI  ÞESS SEM ÞÚ VILT EÐA ÞARFT...
ÞURRKAÐU AF EF ÞÚ VERÐUR,   EN  HAFÐU Í HUGA  AÐ ELLIN  KEMUR  MEÐ  SÍNU  GRÁU HÁR  OG HÚN  ER  EKKI  ALLTAF GÓÐ...
ÞURRKAÐU   AF  EF ÞÚ VERÐUR ...EN  HEIMURINN  BÍÐUR  EFTIR ÞÉR ÞARNA  ÚTI... MEÐ SÓLSKINIÐ  Í  AUGUM ÞÍNUM,  VINDINN Í HÁRI ÞÍNU, FLÖGRANDI  SNJÓKORN,  FÍNGERÐUR REGNÚÐI...
ÞESSI DAGUR KEMUR EKKI AFTUR...OG ÞEGAR ÞÚ FERÐ – OG ÞÚ VERÐUR AÐ FARA...ÞÁ MUNT ÞÚ SJÁLF SKAPA MEIRA RYK!!
DEILDU  ÞESSU  MEÐ ÖLLUM  ÞÍNUM  GÓÐU  VINUM SEM ERU Í ÞÍNU LÍFI... ÉG GERÐI ÞAÐ...
ÞAÐ ER EKKI ÞAÐ SEM ÞÚ SAFNAR,  HELDUR ÞAÐ SEM ÞÚ SÁIR,  SEM SEGIR TIL UM ÞAÐ HVERNIG LÍFI  ÞÚ  HEFUR  LIFAÐ..

Sorg

Elsku ljúflingurinn okkar og prakkarinn hann Brattur varð fyrir bíl í gær og dó, það ríkir mikil sorg hér á heimilinu.

 


Er að....

.....væflast um á blogginu því ég er að bíða eftir að Bratti skratti komi inn hann er úti að vesenast og einsog ógeldum högna sæmir þá hefur hann allt eftir sínu höfði, ég er búin að arga og garga, tala fallega, hvísla og jafnvel mjálma en ekkert gengur, reyndar er mér hætt að lítast á blikuna með hann því ég hef ekki orðið vör við hann í allt kvöld, en ég bíð og vona Errm

Annars ef þið lumið á góðri uppskrift af árshátíðargeimi þá megið þið láta það fljóta inn, ég var nefnilega sett í skemmtinefnd vegna þess, það eru samt að fæðast hugmyndir.......þrátt fyrir verkfall ljósmæðra, stend með þeim heilshugar því þær eru án efa lífsnauðsynleg starfstétt í okkar þjóðfélagi Smile

Þetta er Brattur og hann er eftirlýstur hér með Bandit

CIMG5764  
Kv.Frúin í kattarfári Police

Þá er vertíðin byrjuð !

Jamm vertíðin er byrjuð hjá mér á slysó, enda hristi ein konan þar hausinn þegar ég mætti með dóttur mína og sagði: Nú já þú ert bara mætt Sideways

Já já ég er mætt á svæðið með litla hrakfallabálkinn minn hana Sóldísi Diljá hún lenti í smá óhappi í skólanum og við sendar á slysó með slysið og fórum þaðan líka með þetta fína fína gips á hendinni á henni Whistling

Annars er allt annað bara með kyrrum kjörum Smile

Kv.Frúin í vertíð Police


Stjörnuspá dagsins.

VogVog: Þú lendir í villtum ævintýrum. Aðrir sjá þau sem frábæra skemmtun, en reynsla þín er önnur. Þér finnst svona gaman ekki þess virði að taka þátt í.

Einmitt enda er ég með einsdæmum hógvær kona Whistling


........ :)

Well well....er ekki komin tími til að blogga W00t

Vikurfríið í sumarbústaðnum var yndislegt við komum heim endurnærð á sál og líkama, við fjölskyldan áttum góðar stundir saman þessa viku, ásamt gestum sem kíktu í heimsókn til okkar, mamma og pabbi komu með litlu Spanjólagormana og Tengdó létu sitt ekki eftir liggja að koma með Yfirgormana til okkar á sunnudeginum og borðuðu  með okkur kvöldmat Smile

Annars er allt fínt að frétta, það eru þessi týpísku mánaðarmót hjá mér í vinnunni og þá er bara vinna, éta og sofa, nú svo er skólinn farinn af stað og rúntína að komast á heimilisfólkið Wink

Allt hið besta mál og tíðindalítið úr Ólátagarði, hafið það gott í haustblíðunni sem er að leggjast yfir okkur þessa dagana allir sem einn Cool

Kv.Frúin endurnærð Police


Hvað er hægt að biðja um meira.

Já ég verð nú bara að segja það......Cool

Ísland vann í hreint snilldar leik...koooooooma svooooo, þvílíka blíðan úti, litlu spanjólagormarnir í heimsókn og ég og minn heittelskað erum að fara í bústað núna á eftir, fáum að vera aaaaaalein í alveg heilan sólarhring en þá fara hinir og þessir að birtast á hlaðinu hjá okkur sem er hið besta mál.........hvað er hægt að biðja um meira á þessum drottinsdegi Grin

Eigið yndislega helgi og muna að vakna á sunnudagsmorguninn til að horfa á strákana okkar taka.......helst GULLIÐ Wink

Kv.Frúin svo þakklát og kát með lífið Police


Smá tími fyrir blogg...

...OMG ekki búnir að vera góðir dagar hjá Frúnni búin að vera með kvef og að drepast úr astmakvikindinu og vaknaði með hár í auganu sem Inga gat náð í burtu (takk Inga) og geðveikan geitung í rúminu sem ég barðist við með Bratti sem var ekki að gera sig enda skíthræddur sjálfur (samt er hann köttur Pinch)  Frown

En lítum á björtu hliðarnar..........sko við fórum á handverkssýningu á sunnudaginn hummmmm var samt betra í fyrra og hitteðfyrra verð að segja það Smile mjög björt þessi....nú svo eru Tolli bróðir og Sigrún mág að koma næstu helgi og við ætlum út að borða ásamt fleirum á Rub23....hlakka til Cool

Kv.Frúin að blogga á milli mála, samt ekki svo djúpt Police

 


Gleðigarðurinn 2008

Þetta er nafnið sem útihátíðin hjá mér fékk þessa verslunarmannahelgi W00t

Í Ólátagarð voru mættir 7 næturgestir af þeim gistu 4 út á landareigninni í fellihýsinu sínu og 3 innandyra í herbergi dóttur minnar.  Þetta var mikið og skemmtilegt húllumhæ alla helgina mikið brallað talað etið og drukkið en það verður ekki farið neitt nánar úti það hér Tounge

En það var komið sér saman um það að gera þetta að hefð þannig að ári verður komið saman í Ólátagarði og Gleðigarðurinn 2009 verður settur með pompi og prakt Whistling

Lifið heil og njótið Kissing

Kv.Frúin í tómri gleði Police


Örstutt bara...

Verð í fríi í dag ætla að njóta sólar og blíðviðris Cool

Fer svo með mínum heitt elskaða og Gormunum mínum á rennireiðinni minni til Húsavikur á mærudaga, sest upp hjá tengdó og grilla i staðin lambalæri handa þeim með bernes  Wink

Eigið yndislega helgi öll Heart

Kv.Frúin í ham Police


Akkúrat

VogVog: Þú gætir alveg eins verið í stuttermabol sem á stendur "Skoraðu á mig!" Glampinn í augunum fær fólk til að vilja hafa þig með. Frábær tilboð berast frá ólíklegasta fólki.

Er einmitt í svona bol bleikum með neongrænum stöfum, glampi í augunum og tilboðin hrynja inn Tounge

Kv.Frúin að skora big time Police

 


Fann fyrir.....

......skjálftakipp hérna á Akureyri Sideways
mbl.is Jörð skelfur enn í Grímsey
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Maður bara spyr sig.....

.............ætli það sé komið saman eitthvað þjófagengi sem hefur ákveðið að ræna Frúnna inn að skinni, já maður bara spyr sig því debetkortinu mínu var stolið á laugardaginn W00t

En þar fyrir utan þá var skoppast á miðhálendi og hálendi landsins um helgina, fórum hjónakornin á laugardaginn með Sóldísi Diljá prinsessu með okkur (unglingagormurinn varð eftir heima er ekki alveg að fíla gamla settið og systur sína þessa dagana) til Húsavíkur og keyrðum síðan til Þeystareykja stöldruðum við í gangnamannakofa þar á heiðinni týndum blóðberg til að krydda lambasteikina sem átti að fara á grillið, keyrðum síðan sem leið lá niðrí Mývatnssveit, komum við á mývatnsmarkaðinum og keyptum okkur hverabakað rúgbrauð sem er algjört hnossgæti með reyktum silungi Wink

Á sunnudaginn var morgunkaffið drukkið úti á svölum í blíðunni, þar var tekin ákvörðun um að keyra upp Laugafell öll saman, unglingagormurinn þvertók fyrir að koma með okkur ekkert var hlustað á hans rök og hann neyddur til að koma með í túrinn, allir útí bíl með nesti nýja skó og rándýr olía sett á bílinn Pinch Hoppuðum og skoppuðum uppeftir og farið í laugina í Laugafelli allir nema Frúin sem gleymdi sunddressinu sínu heima, þarf alltaf að hugsa um alla fjölskyldumeðlimina og gleymi mér þar með Sideways

Síðan var keyrt yfir Sprengisand og komið niður í Skagafjörðinn.  Gormarnir voru frekar leiðinleg í þessum túr verð að segja það, því unglingurinn passaði sig á því að klikka ekki á attitúdinu það er að segja að vera í fýlu og stríða systur sinni, en hver man ekki eftir þessu tímabili í lífi sínu þ.e unglingsárunum þegar allir voru svoooooo eitthvað leiðinlegir nema maður sjálfur döööö Grin

Kv.Frúin að spá í að fá sér þjófavörn Police

 


Fjandinn

Nú er pirringur í Frúnni Pinch

Ég varð fyrir því óláni að missa símann minn úti á bílaplaninu niðrí vinnu án þessa að fatta það strax, en svo fór nú fattarinn í gang hjá mér og ég hleyp út, sé símann hvergi ég hringi í hann en þá kemur talhólfið, sem segir mér að síminn hafi verið tekin og símkortinu hent, hann var heldur ekki að verða straumlaus, svona lagað er óþolandi öll símanúmer glötuð allar myndirnar mínar t.d. sem voru teknar af krökkunum og ömmustráknum mínum, vinum og vandamönnum glatað .................því segi ég: Þú þarna óheiðarlega manneskja, vona að þú sért ánægð með "nýja símann þinn" Angry

 Kv.Frúin símalaus og pirruð Police

 


Dóttir mín....

lenti í því sama á sama stað í fyrrasumar og viðbeinsbrotnaði.

Hvað þarf til að úr þessu verði bætt STRAX Angry


mbl.is Hjólaði á bíl
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jæja þá.

Bloggleti í gangi........ó já, það er nú bara svoleiðis stundum W00t

Þar sem hugur minn hefur verið frekar mikið tengdur vinnunni eftir að ég kom heim úr fríinu þá er doldið erfitt að koma sér í gang, svo ég tali nú ekki um að hafa verið erlendis í hita og sælu í 2 vikur og koma svo heim þar sem hvítir fjallstoppar mæta manni þá bara hlunkast sálin niður og það er sökkt sér í vinnu Crying

Ég hitti minn föngulega vinkonuhóp á laugardagskvöldið, við grilluðum saman og skemmtum okkur konunglega fram eftir nóttu, þá var tekin ákvörðun um að húsmæðraorlofið á næsta ári verði á Spáni nánar tiltekið á Torrevieja Cool

Svo er ég náttúrulega búin að kíkja í Zik Zak, fór á laugardaginn þegar var opnað skellti tilhamingjukossi á kinnina á Huld, hún skipaði mér að setja nafnið mitt á miða og setja í pott því það væri alveg verið að fara að draga út vinninga...........og viti menn haldið að Elsa Lund hafi ekki dregið nafnið mitt úr pottinum þar sem ég vann sokkabuxur og sokka, lukkuleg með það Kissing

Nú svo datt ég inní Zik Zak aftur í gær og endaði með líka þessi gasalegu flottu leðurstígvél í poka, maður getur nú alltaf á sig blómum bætt Halo

Svo er hann Brattur litli skógarkisi er reyndar að verða frekar stór, alveg á toppinum með náttúruna hjá sér og veit ekkert hvort hann er að koma eða að fara, hann stökk niður af svölunum í gærdag og þegar það uppgvötaðist varð mikið panik á heimilinu fjölskyldumeðlimirnir hrópuðu og kölluð fram eftir kvöldi, Fíóna hefðarkisa var tekin með í leitina því hún er með bjöllu á ólinni sinni sem heyrist hátt og snjallt í, Brattur þekkir alveg hljóðið í henni og kemur iðulega hlaupandi og stekkur á Fíónu þannig að hún var notuð sem beita, en allt kom fyrir ekki hann lét ekki sjá sig, ég og Diljá fórum uppí rúm þar sem mamma þurfti að hugga prinsessuna sem hágrét yfir þessu öllu saman og var búin að sjá fyrir sér jarðarför með eða án Brattar Frown En hvað haldið þið kom ekki þessi gred..gaur heim klukkan tvö í nótt sat bara á herbergisgólfinu og þreif sig sæll og glaður, stökk svo uppí rúm til mín malandi og skeytti engu þó ég væri að skamma hann, hann vildi bara fá klemm og knús InLove Diljá var svo vakinn klukkan sjö í morgunn og henni sagðar fréttirnar það rétt rifaði í augun hjá henni en brosið var yfir allt andlitið og faðmlögin létu ekki á sér standa, ég held að hann hafið vitað uppá sig skömmina þegar hún tók hann í fangið og kreisti og kyssti Kissing

Svona er nú lífið í Ólátagaðri þessa dagana, njótið veðurblíðunnar meðan hún er Wink

Kv.Frúin í öllu og engu Police


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband